Búast má við öskufalli frá Hvammi að Skógum næstu daga

Samkvæmt sameiginlegu minnisblaði Veðurstofunnar og Jarðvísindastofnunar Háskólans frá kl. 12 í dag bendir ekkert til þess að gosinu sé að ljúka. Gosmökkurinn er ljósgrár og er að jafnaði í 4-5 km hæð samkvæmt veðurratsjá en rís stundum ofar. Hann stefnir í suðaustur en vindáttir eru þó breytilegri við yfirborð og austlægar. Gjóskufall er vestar en áður, var á Skógum í morgun og hófst á Þorvaldseyri um klukkan átta. Er að sögn ábúenda þar að færast vestar. Askan er svört.
Veðurstofan spáir hægri vestlægri eða norðlægri átt og hægviðri af og til fram á þriðjudag. Búast má við öskufalli suður af eldstöðinni eða undir Eyjafjöllum, frá Hvammi og austur að Skógum fram á þriðjudag. Á miðvikudag og fimmtudag má búast við öskufalli fyrir austan eldstöðina.

Drunur hafa heyrst í Vestmannaeyjum, í Borgarfirði og alla leið norður í Vatnsdal í A-Húnavatnssýslu í tæplega 200 km fjarlægð. Láréttar GPS færslur inn að miðju eldfjallsins, ásamt hægu sigi mælipunkta, sýna að eldfjallið dregst hægt saman eftir útþenslu.


Ef tekið er mið af síðustu sjö dögum virðist framleiðsla gosefna hafa farið hægt dvínandi. Gosvirknin hefur þó gengið í bylgjum og má búast við áframhaldandi sveiflum í virkni.


back to top