Breyting á fyrirkomulagi á síðsumarsýningu á Gaddstaðaflötum

Vegna þeirra aðstæðna sem uppi eru í hrossahaldi landsmanna, hefur verið ákveðið að vel athuguðu máli, að hætta að sinni við þá nýbreytni og tilraun sem til stóð að framkvæma á komandi síðsumarsýningu á Hellu að blanda saman reið á beinni braut og hringvelli.
Síðsumarsýningin mun því fara fram með sama hætti og aðrar kynbótasýningar ársins.

f.h. Fagráðs í hrossarækt,
Guðlaugur V. Antonsson


back to top