Breyting á fjósinu á Stóra Ármóti

Nú á haustdögum er unnið að breytingum á fjósinu á Stóra Ármóti. Fjósið sem er frá árinu 1986 og því rúmlega 30 ára gamalt var básafjós þar sem kýr voru leystar til mjalta. Með hliðsjón af velferð kúa og breytingum á aðbúnaðarreglugerð var ákveðið að breyta fjósinu í lausagöngufjós með legubásum. Mjaltakerfið er endurnýjað og nýr sköfuróbót sem hreinsar mykju af steyptu gólfi keyptur. Möguleiki verður á að koma fyrir einstaklingsfóðrunarboxum vegna tilraunastarfs. Verkinu miðar vel og ef allt fer að óskum verða kýrnar fluttar í fjósið í lok næstu viku. Kostnaðaráætlun hljóðar upp á 24 milljónir.


back to top