Boðið verður upp á afkvæmasýningar stóðhesta

Vegna frestunar landsmóts hestamanna hefur fagráð í hrossarækt ákveðið boðið verði upp á hefðbundnar afkvæmasýningar stóðhesta á viðburðunum sem áætlaðir eru um verslunarmannahelgina, Fákaflugi í Skagafirði og Hestafjöri 2010 á Gaddstaðaflötum. Þetta fer að sjálfsögðu eftir því hvort áhugi er fyrir hendi eður ei.

Vegna undirbúnings er áríðandi að eigendur mögulegra hesta setji sig í samband við Guðlaug Antonsson, hrossaræktarráðunaut BÍ, sem fyrst í síma 892-0619 eða ga@bondi.is.


back to top