Blíða mjólkar og mjólkar í blíðunni

Niðurstöður afurðaskýrslna í nautgriparæktinni við lok maí 2012 hafa verið reiknaðar og birtar á nautgriparæktarsíðum bondi.is. Þegar yfirlitið var búið til höfðu borist skýrslur frá 92% þeirra 596 búa sem skráð eru í skýrsluhaldið. Rétt er að minna á það hér að einungis bú sem búið var að skila skýrslum frá fyrir miðnætti hinn 10. apríl geta birst á listanum yfir bú þar sem nytin var yfir 4.000 kg eftir árskú.

Hæsta meðalnyt 7.824 kg
Helstu niðurstöðurnar eru þær að 21.712,8 árskýr mjólkuðu að meðaltali 5.589 kg sl. 12 mánuði, sem er hækkun um 25 kg frá síðasta uppgjöri. Hæsta meðalnytin við lok apríl var á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði 7.824 kg eftir árskú. Næst á eftir kom búið á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð, Rang., þar voru meðalafurðirnar 7.652 kg eftir árskú og þriðja búið í röðinni var í Reykjahlíð á Skeiðum í Árnessýslu en þar var nytin 7.563 kg. Efstu búin 2 eru þau sömu og í síðasta mánuði en búið í Hraunkoti sem var nr. 3 í apríl er í þetta sinn nr. 6. Á 21 búi fór meðalnytin yfir 7.000 kg eftir árskú en á 23 búum í mánuðinum á undan.


Blíða mjólkar og mjólkar í blíðunni
Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var hin sama og næstu fjóra mánuði á undan, Blíða nr. 1151 í Flatey á Mýrum, A.-Skaft., nyt hennar síðastliðna 12 mánuði var 12.948 kg. Önnur kýrin í röðinni yfir nythæstu kýrnar síðastliðna 12 mánuði var einnig kýr í Flatey, Munda nr. 1131, en hún mjólkaði 12.333 kg. Hin þriðja á þessum lista í maílok 2012 var Stella nr. 317 í Tröð í Borgarbyggð (áður Kolbeinsstaðahreppi í Snæfells- og Hnappadalssýslu), sem mjólkaði 11.264 kg sl. 12 mánuði. Alls náðu 8 skýrslufærðar kýr að fara yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum og tvær þeirra yfir 12.000 eins og þegar hefur komið fram.

Sjá nánar:
Niðurstöður skýrsluhaldsins á vef BÍ


back to top