Blíða 1151 í Flatey á toppnum fjórða mánuðinn í röð

Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktinnar við lok apríl 2012, hafa verið reiknaðar og birtar á nautgriparæktarsíðu bondi.is. Þegar yfirlitið var búið til höfðu borist skýrslur frá 95% búanna sem skráð eru í skýrsluhaldið. Rétt er að minna á það hér að einungis bú sem skilað höfðu skýrslum fyrir miðnætti hinn 10. apríl geta birst á listanum yfir bú þar sem nytin var yfir 4.000 kg eftir árskú.
Helstu niðurstöðurnar eru þær að 22.387,9 árskýr mjólkuðu að meðaltali 5.564 kg sl. 12 mánuði, sem er hækkun um 15 kg frá síðasta uppgjöri.

 Hæsta meðalnytin við lok apríl var á Hóli í Sæmundarhlíð í Skagafirði 7.865 kg eftir árskú. Næst á eftir kom búið á Kirkjulæk 2 í Fljótshlíð, Rang., þar voru meðalafurðirnar 7.720 kg eftir árskú og þriðja búið í röðinni var í Hraunkoti í Landbroti, V-Skaft. en þar var nytin 7.653 kg. Þetta eru sömu þrjú bú og voru efst á listanum í síðasta mánuði, eina breytingin er að tvö þau neðri hafa skipt um sæti. Á 23 búum fór meðalnytin yfir 7.000 kg eftir árskú.


Blíða í Flatey hefur mjólkað 12.725 kg síðustu 12 mánuði
Nythæsta kýrin á síðustu 12 mánuðum var hin sama og næstu þrjá mánuði á undan, Blíða nr. 1151 í Flatey á Mýrum, A.-Skaft., nyt hennar var 12.725 kg. Önnur kýrin í röðinni yfir nythæstu kýrnar síðastliðna 12 mánuði var Anna nr. 280 í Garðakoti í Hjaltadal í Skagafirði, en hún mjólkaði 11.481 kg. Hin þriðja á þessum lista í apríllok 2012 var Kolsa nr. 245 í Gaulverjabæ í Flóa, Árnessýslu, sem mjólkaði 11.447 kg sl. 12 mánuði. Alls náðu 8 skýrslufærðar kýr að fara yfir 11.000 kg á síðustu 12 mánuðum og ein þeirra yfir 12.000 eins og þegar hefur komið fram.


Sjá nánar:
Niðurstöður skýrsluhalds nautgriparæktarinnar


back to top