Bestu hrútar sæðingastöðvanna verðlaunaðir

Í lok málþings um ræktunarmarkmið í sauðfjárrækt sem haldið var að loknum aðalfundi Landssamtaka sauðfjárbænda voru afhent verðlaun fyrir bestu hrúta sæðingastöðvanna á síðasta ári. Um er að ræða tvenn verðlaun, fyrir besta lambaföðurinn og besta alhliða kynbótahrútinn á síðasta ári. Jón Viðar Jónmundsson lýsti verðlaunahrútunum en besti lambafaðirinn 2010-2011 var Gosi frá félagsbúinu í Ytri-Skógum. Besti alhliða kynbótahrúturinn var Bogi frá Ragnar Bragasyni á Heydalsá.
Fanney Ólöf Lárusdóttir frá Kirkjubæjarklaustri sagði við afhendinguna að þetta væri í fjórða sinn sem þessi verlaun eru veitt. Jón Viðar sagði að Gosi frá Ytri-Skógum hefði strax veturgamall sýnt einhverja mestu yfirburði við skoðun sem sést hefur. Hann á nú þegar fjölda afkomenda.

 


Bogi frá Heydalsá kom inn á sæðingastöð 2008 eftir að hann var þegar farinn að vekja athygli heima fyrir. Sagði Jón Viðar að hann hafi skilað gríðarlega góðum sláturlömbum sérstaklega með þá eiginleika að skila fitulitlu kjöti. Þá hafi Bogi  verið kominn með fleiri hrúta í toppgæðum í sínum afkomendahóp á landsvísu en sést hefur eftir hrút áður en hann var kominn  inn á sæðingastöð. „Það er ekkert vafamál að Bogi er einhver mesti alhliða kynbótahrútur sem enn hefur komið fram á sjónarsviðið í ræktun,“ sagði Jón Viðar.


back to top