Bændafundir BÍ

Bændasamtök Íslands halda bændafundi víða um land í upphafi næstu viku, dagana 9. – 11. janúar. Fundarefnið er tvíþætt, annars vegar upptaka félagsgjalda hjá BÍ og hins vegar nýjar reglugerðir sem tengjast nýgerðum búvörusamningum. Farið verður yfir áhrif nýrra búvörusamninga á rekstur bænda. Bændur eru hvattir til að mæta á fundina og ræða sín hagsmunamál við forystufólk samtakanna.

Fundirnir eru sem hér segir:

Hornafjörður – Mánagarður í Nesjum, mánudaginn 9. janúar kl. 12.00

Kirkjubæjarklaustur – Kirkjuhvoll, mánudaginn 9. janúar kl. 20.30

Rangárvallasýsla – Heimaland, þriðjudaginn 10. janúar kl. 12.00

Árnessýsla – Þingborg, þriðjudaginn 10. janúar kl. 20.30

Auglýsing um bændafundina

 

 

 


back to top