Bændafundir BÍ hefjast mánudaginn 22. nóv. n.k.

Almennir haustfundir Bændasamtakanna hefjast mánudaginn 22. nóvember með fundi á Sauðárkróki. Fyrsti fundur hér á Suðurlandi verður á Flúðum þriðjudaginn 23. nóvember n.k. Alls verða fundirnir 16 talsins, verða haldnir um allt land og verða síðustu fundir þann 6. desember n.k.
Á fundunum verða m.a. rædd þau tækifæri sem landbúnaðurinn hefur til þess að efla þjóðarhag og hvar sóknarfæri liggja. Nýgerður búnaðarlagasamningur verður til umfjöllunar og spurt verður hvernig unnt er að verja kjör bænda í erfiðu efnahagsástandi.



Haraldur Benediktsson, formaður BÍ, segir í leiðara í nýju Bændablaði að meginerindi á bændafundum sé að heyra hvernig félagsmenn BÍ vilji beita sínum samtökum. Hann hvetur jafnframt alla bændur til að mæta því á bændafundum gefist kostur á að láta í sér heyra og hlusta á aðra.
Framsögumenn verða stjórnarmenn BÍ ásamt ýmsum starfsmönnum samstakanna.

Á Suðurlandi verða eftirtaldir fundir:


Eyjafjöll, þriðjudaginn 23. nóvember kl. 13.00 að Heimalandi.
Flúðir, þriðjudaginn 23. nóvember kl. 20.30 á Hótel Flúðum.
Hornafjörður, mánudaginn 6. desember kl. 14.00 á Smyrlabjörgum.
Kirkjubæjarklaustur, mánudaginn 6. desember kl. 20.30 á Geirlandi.


back to top