Áramótavinnslur í dkBúbót og staðgreiðsla launagreiðenda 2011

Við áramót þurfa launagreiðendur að uppfæra fjárhæðir og mörk vegna staðgreiðslu og notendur dkBúbótar þurfa að færa helstu stðagreiðslutölur inn í launakerfið. Setja þarf inn í dkBúbót nýtt bókhaldsár og staðgreiðsluforsendur. Til að setja inn staðgreiðsluforsendur í dkBúbót er valið Laun – Uppsetning – Staðgreiðsluforsendur og ný færsla stofnuð. Athugið að allir notendur launakerfisins þurfa sjálfir að setja inn þessar breytingar.
Eins þarf að huga að ýmsum atriðum í mismunandi kerfum dkBúbótar. Ítarlegar upplýsingar og leiðbeiningur um þessar vinnslur má finna í handbók frá DK, Áramótavinnslur í dk.

Skil á launa- og verktakamiðum
Launa- og verktakamiðum vegna ársins 2010 skal skila eigi síðar en 30. janúar 2011 á pappír og 10. febrúar 2011 með rafrænum hætti. Sjá nánar í orðsendingu RSK sem og orðsendingu um áritun launa og starfstengdra greiðslna.
Uppfærsla á dkBúbót vegna launamiða er væntanleg í þriðju viku ársins og verður send notendum með tölvupósti. Þeir notendur sem vilja uppfærsluna á geisladisk eru beðnir um að panta það hjá tölvudeild BÍ á netfangið tolvudeild@bondi.is.



Ítarlegri upplýsingar


Orðsending RSK 1/2011 

Orðsending RSK 3/2010 

Orðsending RSK 4/2010


Helstu staðgreiðslutölur 2011 


Áramótavinnslur í dkBúbót 


Skattabæklingur Deloitte 


back to top