Upplýsingar > Markmið/tilgangur BSSL >

Markmið/tilgangur BSSL

Búnaðarsamband Suðurlands er samband búnaðar og búgreinafélaga, og var stofnað árið 1908 af búnaðarfélögum á Suðurlandi. Félagssvæði þess nær yfir Árnes-, Rangárvalla- og Vestur-Skaftafellssýslur. Starfssvæðið nær yfir áður nefndar þrjár sýslur auk A-Skaftafellssýslu.


Búnaðarsambandið starfar í þágu sunnlenskra bænda og miðar að því að efla framfarir í landbúnaði og auka hagsæld þeirra sem landbúnað stunda. Búnaðarsambandið vinnur í samvinnu við Bændasamtök Íslands við að framfylgja gildandi lögum er varða landbúnað hverju sinni. Búnaðarsambandið veitir faglega ráðgjöf í flestu því er lýtur að landbúnaði og sér einnig um bændabókhald og skattframtöl fyrir bændur.
Búnaðarsambandið vinnur að faglegum og félagslegum málum bænda, sinnir opinberri stjórnsýslu auk þess að reka sín fyrirtæki.

Miðstöð Búnaðarsambands Suðurlands er að Austurvegi 1 á Selfossi og nefnist Búnaðarmiðstöðin. Hjá Búnaðarsambandinu starfa um 10 ráðunautar auk skrifstofufólks. Ráðunautarnir starfa að landbúnaðarráðgjöf í þágu bænda og eru flestir staðsettir á Selfossi utan 3-4 sem eru á Hvolsvelli, Kirkjubæjarklaustri og Höfn. Einnig eru starfandi einstaklingar út um héraðið sem veita bókhaldsþjónustu fyrir bændur á vegum Búnaðarsambandsins. Skógrækt ríkisins, Suðurlandsskógar, Veiðimálastofnun-Suðurlandsdeild o.fl. leigja aðstöðu fyrir starfsemi sína í Búnaðarmiðstöðinni.

Prenta þessa síðu