Upplýsingar > Lög BSSL >

Lög BSSL

1.gr.
Búnaðarsamband Suðurlands er samband búnaðar- og búgreinafélaga sem starfa að einhverju eða öllu leyti í Árnessýslu, Rangárvallasýslu og V-Skaftafellssýslu. Það er aðili að Bændasamtökum Íslands. Heimili og varnarþing þess er á Selfossi.
Nái starfssvæði aðildarfélags inn á starfssvæði annars búnaðarsambands skal leitað eftir samstarfssamningi við það.

2.gr.
Aðild að Búnaðarsambandinu geta átt þeir einstaklingar og lögaðilar, sem þess óska og stunda búrekstur í atvinnuskyni, enda séu þeir félagar í búnaðar- eða búgreinafélagi, sbr.1. gr.
Aðild einstaklinga skal óháð því hvort þeir stunda búrekstur í eigin nafni eða annarra. Undir búrekstur fellur hverskonar búfjárrækt, jarðrækt, skógrækt, garðrækt og ylrækt. Einnig eftirfarandi starfsemi fari hún fram á lögbýlum: Eldi og veiðar vatnafiska, nýting hlunninda, framleiðsla, úrvinnsla og þjónusta.
Einstaklingar sem félagar eru í fleiri en einu aðildarfélagi skulu tilnefna eitt þeirra sem sitt aðalfélag, sem þar með ber ábyrgð á aðild þeirra. Samkvæmt því skal Búnaðarsambandið halda skrá yfir aðildarfélög sín og samræmda félagaskrá yfir alla félagsmenn þeirra. Sú félagaskrá er jafnframt félagaskrá Búnaðarsambandsins.

3. gr.
Tilgangur sambandsins er að efla hvers konar framfarir í landbúnaði, gæta hagsmuna og auka hagsæld þeirra sem landbúnað stunda.
Að framfylgja á hverjum tíma gildandi löggjöf um íslenskan landbúnað í samstarfi við þá aðila sem annast framkvæmd slíkra laga.

4. gr.
Búnaðarsambandið mun leitast við að ná tilgangi sínum með því að:
  1. Hafa í þjónustu sambandsins sem best menntaða leiðbeinendur, sem veiti faglega aðstoð í sem flestum greinum landbúnaðarins.
  2. Efla hverskonar félagsmálastarfsemi í héraðinu sem vinnur að framförum í landbúnaði.
  3. Gefa út ársrit og annast aðra útgáfustarfsemi til fróðleiks og framfara eftir því sem aðstæður leyfa á hverjum tíma.
  4. Búnaðarsambandinu ber að sjá um kosningu til Búnaðarþings samkvæmt samþykktum Bændasamtaka Íslands.

5.gr.
Heimilt er Búnaðarsambandinu að innheimta árgjald af félögum. Skal þá hvert aðildarfélag standa skil á greiðslu þess í samræmi viðfyrirliggjandi félagaskrá samkv. 2.gr.
Árgjald Búnaðarsambandsins er ákveðið á aðalfundi sambandsins hverju sinni fyrir næsta ár. Gjöldum þessum skal skilað fyrir 1. desember ár hvert ásamt félagatali.
Reikningssár Búnaðarsambandsins er almanaksárið.

6. gr.
Stjórn Búnaðarsambandsins skal skipuð fimm mönnum. Formaður, varaformaður, ritari og tveir meðstjórnendur. Kosnir skulu jafnmargir til vara. Stjórn og varastjórn skal þannig skipuð: Úr Vestur-Skaftafellssýslu einn stjórnarmaður, úr Rangárvallasýslu tveir og úr Árnessýslu tveir.
Stjórnarmenn og varamenn þeirra skulu kosnir til þriggja ára, þannig að Árnesingar skulu kosnir eitt árið, Rangæingar annað árið og Vestur-Skaftfellingar hið þriðja.
Löggiltur endurskoðandi skal kosinn árlega. Tveir skoðunarmenn reikninga skulu kosnir til tveggja ára í senn og tveir til vara. Skoðunarmaður reikninga skal eigi starfa lengur en sex ár í senn.
Stjórnin skiptir sjálf með sér verkum. Hún ræður framkvæmdastjóra, er sér um daglegan rekstur sambandsins, reikningshald og ráðningu starfsfólks í samráði við stjórn sambandsins.

7.gr.
Aðalfundur Búnaðarsambandsins skal haldinn árlega, eigi síðar en í júnímánuði. Skal boða til hans með minnst hálfsmánaðar fyrirvara.
Á aðalfundi eiga sæti kjörnir fulltrúar félaga sem aðalfundur Búnaðarsambands Suðurlands hefur samþykkt sem aðildarfélög.
Hvert aðildarfélag á rétt á fulltrúum sem hér segir:
  Þar sem félagatala er allt að 60, einn fulltrúa.
  Þar sem félagatala er 61-120, tvo fulltrúa.
  Þar sem félagatala er 121-180, þrjá fulltrúa.
  Þar sem félagatala er 181-240, fjóra fulltrúa, o.s.frv.

Aukafulltrúafund skal halda ef meirihluti stjórnar eða einn þriðji hluti kjörinna fulltrúa krefst þess. Auk kjörinna fulltrúa eiga stjórn sambandsins og ráðunautar þess málfrelsi og tillögurétt, svo og allir félagsmenn aðildarfélaga. Atkvæðisrétt hafa aðeins kjörnir fulltrúar. Þó skal enginn fara með nema eitt atkvæði.
Aðalfundur er lögmætur ef helmingur kjörinna fulltrúa er mættur ásamt meirihluta stjórnar sambandsins. Afl atkvæða ræður úrslitum. Þó þarf 2/3 hluta greiddra atkvæða á lögmætum aðalfundi til þess að lagabreytingar hljóti löglega afgreiðslu, enda hafi tillaga að lagabreytingu verið send út með fundarboði.

8. gr.
Á aðalfundi skal stjórnin leggja fram til umræðu og afgreiðslu:
  1. Endurskoðaða reikninga sambandsins fyrir undanfarið ár, ásamt félagaskrá skv. 2. gr.
  2. Skýrslu um starfsemi sambandsins undanfarið ár.
  3. Fjárhagsáætlun fyrir yfirstandandi reikningsár.
  4. Kjósa trúnaðarmenn samkvæmt 6. grein.

9. gr.
Stjórn Búnaðarsambandsins er heimilt að kjósa heiðursfélaga. Hvorki aðalfundur né aðrir opnir fundir eru ályktunarfærir um kjör heiðursfélaga. Fjölda heiðursfélaga skal stilla mjög í hóf. Við kjör heiðursfélaga skal afhenda heiðursskjal undirritað af stjórnarmönnum sambandsins.
Heiðursfélögum skal boðið að taka þátt í öllum hátíðarfundum sambandsins. Þeir skulu einnig boðaðir á aðalfund sambandsins og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.

10. gr.
Lög þessi öðlast gildi þegar þau hafa verið samþykkt af aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands, undirrituð af stjórn og staðfest af Bændasamtökum Íslands.

Samþykkt á aðalfundi Búnaðarsambands Suðurlands að Heimalandi 25. apríl 2003

Prenta þessa síðu