11.12.2007 14:12
Vinnslu kynbótamats fyrir reynd naut lokið

Vinnslu kynbótamats fyrir reyndu nautin er nýlokið en vinnsla endingarmats dróst nokkuð á langinn. Upplýsingar um þau naut sem verða í nautaskrá vetrarins eru komnar á vefinn hjá okkur í samantekt í líkingu við nautaspjaldið góða. Til þess að skoða spjaldið má smella hér.
Jafnframt er að finna nánari umsögn um þau naut sem koma til notkunar úr 2001 árgangum í Sæðisdropanum með því að smella hér.
Nautaskráin kemur vonandi út innan skamms en verið er að leggja lokahönd á vinnsluhennar. Nautskrá Nautastöðvar BÍ á netinu verður uppfærð með upplýsingum um naut í nautaskrá nú síðar í dag. Slóðin á Nautaskrána er www.nautaskra.net.