5. fundur 2001

Fundargerð



Stjórnarfundur 8. júní 2001




Þann 8.júní 2001 var haldinn stjórnarfundur Búnaðarsambands Suðurlands að Stóra-Ármóti.

Allir stjórnarmenn mættir ásamt framkvæmdastjóra og auk þess sátu Grétar Harðarson tilraunastjóri, og Eiríkur Þorkelsson tilraunamaður fundinn.



  1. Heiðurssamsæti Hjalta Gestssonar. Rætt um undirbúning þess, en það verður nk. sunnudagskvöld. Útlit er fyrir góða þátttöku.

  2. Stofnun einkahlutafélagsins um Stóra-Ármót. Ákveðið að stofnun einkahlutafélagsins taki að fullu gildi um áramótin 2001-2002 með fyrirvara um samþykki aðalfundar 2002.

  3. Húsvist og framtíð sauðfjárins á Stóra-Ármóti. Stjórnin var sammála að halda áfram með sauðféð en leggja ekki í kostnað við núverandi fjárhús. Kannaðir verði betur möguleikar á að nota hluta af fjóshlöðunni fyrir féð eða byggja nýja byggingu fyrir fé og e.t.v. fleira. Þær tillögur liggi fyrir á stjórnarfundi í ágúst.

  4. Tilraunir á Stóra-Ármóti. Grétar tilraunastjóri skýrði frá þeim tilraunum sem í gangi hafa verið. Þar hefur verið athuguð áhrif mismunandi sláttutíma ásamt tvíslætti á vallarfoxgrasi á mjólkurgetu kúa, lífsskilyrði samonellusýkla voru rannsökuð í mismunandi verkuðu rúlluheyi og áhrif fóðrunar á efnainnnihald mjólkur voru könnuð. Ræktunarkjarninn er sífellt í gangi, unnið er að gæðastýringahandbók og hugað er að undirbúningi að athugun á hámarksafköstum íslensku kýrinnar og að tilraunaáætlun með innflutt erfðaefni sem kosið verður um í haust. 

  5. Ráðning bústjóra á Stóra-Ármóti. Auglýst hefur verið eftir bústjóra í stað Einars Gestssonar og Hafdísar Hafsteinsdóttur. Kynntar voru nokkrar umsóknir sem hafa þegar borist. Framkvæmdastjóra og tilraunastjóra falið að ráða fólk í starfið.

  6. Tilnefning í jarðanefnd V-Skaftafellssýslu. Tilnefndir eru Sigfús Sigurjónsson, Borgarfelli og Þórarinn Bjarnason, Þykkvabæ. Varamenn eru tilnefndir í sömu röð Þórarinn Eggertsson, Hraungerði og Erlendur Björnsson Seglbúðum.

  7. Notkun kjötmjöls í uppgræðslu. Svör hafa borist við tillögu aðalfundar. Þar kemur fram að tilraunir í þessa átt yrðu utan beitilanda. 

  8. Önnur mál. Rætt var um óánægju bænda með bætur Bjargráðasjóðs vegna skaða af flóðum úr Hvítá sl. vetur og fjósbyggingaáform við Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri.

Fundargerð upplesin og samþykkt


Guðmundur Stefánsson,
fundarritari.


back to top