3. fundur – haldinn 13. apríl 2018

Á fundinn sem haldinn var í Smáratúni að loknu kjöri stjórnarmanna úr Rangárvallasýslu mættu Erlendur Ingvarsson, Ragnar Lárusson Gunnar Kr. Eiríksson. Sigurjón Eyjólfsson og Helgi Eggertsson. Helgi Eggertsson aldursforseti setti fundinn. Gunnar lýsti því yfir að hann sæktist eftir endurkjöri og var það samþykkt. Gunnar stakk upp á Ragnari Lárussyni sem varaformanni og Sigurjóni Eyjólfssyni sem ritara. Stjórnin er þá þannig skipuð. Gunnar Kr Eiríksson formaður, Ragnar Lárusson varaformaður, Sigurjón Eyjólfsson ritari , Erlendur Ingvarsson og Helgi Eggertsson meðstjórnendur.

Fleira ekki og fundi slitið

Fundargerð ritaði Sveinn Sigurmundsson


back to top