3. fundur 2012 – haldinn 20. apríl

Stjórnarfundur BSSL 3/2012

Á fundinn sem haldinn var að Heimalandi að afloknum aðalfundi mættu Guðbjörg Jónsdóttir, Erlendur Ingvarsson, Ragnar M. Lárusson, Jón Jónsson, og Gunnar Kr. Eiríksson. Jón Jónsson aldursforseti setti fund og bauð fundarmenn velkomna og þá sérstaklega nýkjörinn stjórnarmann Erlend Ingvarsson, Skarði.
Stjórnin skipti með sér verkum. Guðbjörg Jónsdóttir formaður, Ragnar M. Lárusson varaformaður, Jón Jónsson ritari og þeir Erlendur Ingvarsson og Gunnar Kr. Eiríksson meðstjórnendur. Sveinn Sigurmundsson sat fundinn og ritaði fundargerð.

Fleira ekki og fundi slitið
Sveinn Sigurmundsson


back to top